Erlent samstarf

Meðal hlutverka Félags tónlistarskólakennara er að efla faglegt samstarf við samtök og stofnanir erlendis og að afla og miðla upplýsingum um þróun tónlistarfræðslu sem og fagleg málefni er varða tónlistarskóla

FT er aðili að erlendu samstarfi á eftirfarandi vettvangi:

Nordisk Union for Musikutbildare (NUMU)

„Nordisk Union for Musikutbildare“ eru norræn samtök tónlistaruppalenda sem samanstanda af félögum og samtökum frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð ásamt Færeyjum. Yfirmarkmið NUMU er að styrkja samstarf og samskipti Norðurlandanna með tilliti til tónlistar og tónlistarfræðslu.
 

European Music School Union (EMU)

„European Music School Union“ eru samtök tónlistarskóla í Evrópu og voru stofnuð 1973. Samtökin hafa það m.a. að markmiði að miðla upplýsingum um allt sem viðkemur tónlistarskólum og vekja áhuga yfirvalda og almennings í Evrópu á tónlistarmenntun og tónlistariðkun.
 

International Society for Music Education (ISME)

International Society for Music Education eru alþjóðasamtök tónlistaruppalenda sem voru stofnuð 1953. Samtökin hafa það m.a. að markmiði að veita tónlistarkennurum og flytjendum frá öllum heimshornum færi á að hittast og vinna saman að ákveðnum verkefnum, aðstoða tónlistarkennara við varðveislu og kennslu tónlistar og menningar ásamt því að mennta hugmyndaríka og hæfa tónlistarmenn fyrir samtímann.

Nánari upplýsingar um ofangreind samtök er að finna hér til hliðar.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli