Í byrjun skólaársins 2002-2003 ákvað stjórn Félags tónlistarskólakennara að gera könnun á starfi tónlistarkennara og þjónustu og umfangi tónlistarskóla í landinu. Markmiðið með könnuninni var að ná fram heildstæðri mynd af því starfi sem fram fer í tónlistarskólum landsins og stuðla að reglulegri söfnun upplýsinga sem varpa ljósi á stöðu og þróun mála. Telur stjórnin að markmiðin hafi náðst að því marki sem hægt er með könnun af þessu tagi.
Séu niðurstöðurnar skoðaðar nánar má finna margvísleg áhugaverð atriði. Sem dæmi má nefna eru um 87% allra nemenda tónlistarskólanna í grunnnámi og þar með að meginhluti kennslu skólanna fer í kennslu yngri barna og í byrjendakennslu. Einungis 46% svarenda telja vinnuaðstöðu kennara fullnægjandi og er það lýsandi um hversu aðbúnaði skólanna er oft á tíðum ábótavant. Einnig er mikill munur eftir landsvæðum hversu hlutastörf eru algeng meðal kennara. 61% kennara/stjórnenda utan höfuðborgarsvæðisins eru í 71-100% starfshlutfalli meðan einungis 30% kennara/stjórnenda á höfuðborgarsvæðinu eru í svo háu starfshlutfalli.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast könnunina (á pdf-formi) og einnig samantekt stjórnar FT um hana. Í samantekt stjórnar eru dregin fram ákveðin atriði úr hverjum kafla og þau sett í faglegt og pólitískt samhengi með það að markmiði að auðvelda lesningu skýrslunnar og kalla fram umræðu.
Könnun á starfi tónlistarkennara, þjónustu og umfangi tónlistarskóla (pdf-skjal).
Samantekt stjórnar á niðurstöðum úr könnun á starfi tónlistarkennara, þjónustu og umfangi tónlistarskóla (pdf-skjal).