Menntamálaráðherra boðar til Menntaþings í september sem er öllum opið. Á þinginu munu innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um stefnu í menntamálum og framkvæmd hennar. Í fjölbreyttum málstofum verður m.a. fjallað um menntun kennara, framhaldsskóla framtíðarinnar og tengsl milli skólastiga. Þátttaka er ókeypis og öllum opin en óskað er eftir að þátttakendur skrái sig, sjá hér. Á vefnum Ný menntastefna er að finna frekari upplýsingar um þingið ásamt dagskrá.
Menntaþing 12. september í Háskólabíói