Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskóla fer fram í þremur hlutum og byggir skipulag og grunnhugsun hátíðarinnar á því að þátttakendur séu frá öllu landinu, á öllum aldri og efnisskráin endurspegli ólík viðfangsefni á öllum stigum tónlistarnámsins.
Fyrsti hluti hátíðarinnar fer fram innan hvers skóla og er nú afstaðinn í flestum skólum. Annar hlutinn, þ.e. svæðisbundnir tónleikar, sem fara fram á þremur stöðum út um land standa nú fyrir dyrum:
Þriðji hluti uppskeruhátíðar tónlistarskóla fer fram í formi tónleika á landsvísu laugardaginn 26. mars 2011 í Langholtskirkju í Reykjavík. Allir velkomnir – aðgangur ókeypis!
Nánari upplýsingar um Nótuna má finna á notan.is.